Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

13.2.2010

Samningur um menntunarúrræði fyrir ungt fólk

Föstudaginn 5. febrúar 2010 undirritaði Inga Dóra Halldórsdóttir f.h. Kvasis og Unnur Sverrisdóttir f.h. Vinnumálastofnunar samstarfssamning um menntunarúrræði fyrir ungt fólk. Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherra staðfesti samning með undirritun sinni.

Með samningnum er áætlað að veita ungu fólki án atvinnu og sem er tryggt innan atvinnuleysistryggingakerfisins, tækifæri til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum. Eiga fræðslu- og símenntunarmiðstöðvarnar innan Kvasis að annast kennslu og starfsþjálfun vegna atvinnutengds náms, ásamt stuðningi og ráðgjöf, fyrir allt að 700 unga atvinnuleitendur samkvæmt samningi þessum. Áætlað er að um 300 milljónum króna verði varið til verkefnisins. Samningurinn gildir til 31. desember 2010.

Samningurinn er liður í átaki félags- og tryggingamálaráðuneytisins og Vinnumálastofnunar, undir kjörorðinu Ungt fólk til athafna. Átakinu er ætlað að skapa á þessu ári.yfir 2000 náms- starfstækifæri fyrir ungt fólk. Þegar hafa verið tryggð úrræði fyrir hátt í 1000 einstaklinga með þessum samningi við Kvasi og samningi sem gerður hefur verið við Rauða kross Íslands.

Í fréttatilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu segir að ráðuneytið og Vinnumálastofnun hafi sett það markmið að enginn verði atvinnulaus lengur en þrjá mánuði án þess að fá tilboð um vinnumarkaðsúrræði af einhverju tagi. Þessu markmiði skal náð gagnvart fólki yngra en 25 ára fyrir 1. apríl 2010 og 1. september 2010 fyrir aðra.

Unnur Sverrisdóttir, Árni Páll Árnason og og Inga Dóra Halldórsdóttir undirrita samninginn 

Meðfylgjandi mynd er af þeim Unni Sverrisdóttur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs hjá Vinnumálastofnun, Árna Páli Árnasyni félags og tryggingamálaráðherra og Ingu Dóru Halldórsdóttur formanni stjórnar Kvasis að undirrita samninginn.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
  • Prenta síðu
  • Senda síðu