Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

7.5.2009

Breyttar samþykktir Kvasis

Kvasir – samtök fræðslu- og símenntunarmiðstöðva á landsbyggðinni voru stofnuð 31. maí 2000 og en að samtökunum stóðu þá 8 fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar á landsbyggðinni, en yngsta miðstöðin er í Vestmannaeyjum og bættist í hópinn árið 2003. Samstarf fræðslu- og símenntunarmiðstöðvanna á landsbyggðinni hefur  verið mjög gott, en starfsfólk miðstöðvanna hittist amk. tvisvar á ári, þ.e. á haust- og vorfundi.    Á vordögum sótti Mímir- símenntun um aðild að samtökunum og var sú umsókn samþykkt samhljóða, að undangengnum breytingum á samþykktum. Með breyttum samþykktum heita samtökin „Kvasir-samtök fræðslu og símenntunarmiðstöðva“, en rétt til aðildar að samtökunum eiga svæðisbundnar fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar á Íslandi sem sinna símenntun og öðrum verkefnum skv. samningum við menntamálaráðuneytið. Umsvif í starfsemi miðstöðvanna hefur aukist jafnt og þétt og verkefnin  fjölbreytt.  Að sama skapi hefur samstarfið  aukist hjá þeim sem vinna að fullorðinsfræðslu. Verkefnin eru mörg hver þau sömu sem unnin eru á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni og í auknum mæli hafa þessir aðilar miðla af reynslu og koma til með gera það enn frekar.  

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
  • Prenta síðu
  • Senda síðu