Fréttir
1.2.2009
Aðgerðir Kvasisfélaga við efnahags- og atvinnuástandi
Í janúar komu forstöðumenn fræðslumiðstöðvanna innan Kvasis saman til félagsfundar í Reykjavík.
Umræðuefnið var samstilltar aðgerðir fræðslumiðstöðvanna gagnvart breyttu atvinnu- og efnahagsástandi. Farið var yfir aðgerðir miðstöðvanna um allt land, en allar hafa stofnanirnar brugðist við vandanum í samvinnu við aðra aðila í "stoðkerfi" samfélagsins. Stjórn Kvasis er að vinna úr niðurstöðum fundarins og mun kynna þær á næstunni.
Leit







